

Fólkið á bak við Gestalétti
Við erum íslensk-taílensk fjölskylda sem hefur starfað við ferðaþjónustu í nær tvo áratugi.
Stærstan hluta þess tíma höfum við búið á Suðurlandi þar sem við höfum sinnt fjölbreyttum verkefnum innan ferðaþjónustunnar, allt frá þrifum og viðhaldi upp í daglegan rekstur gististaða.
Árið 2026 urðu stór kaflaskil þegar við ákváðum að flytja til Taílands með börnin okkar. Sú breyting varð til þess að við fórum að nýta reynslu okkar úr ferðaþjónustunni á nýjan hátt - og úr því varð Gestaléttir.
Markmið okkar er að hjálpa öðrum gististöðum að nýta Booking.com betur með reynslu og þekkingu sem við höfum byggt upp í gegnum árin.
Við gerum okkar besta til að finna lausnir sem henta hverjum gististað fyrir sig og er ykkur alltaf velkomið að hafa samband ef þið hafið spurningar sem falla utan þjónustupakkanna.
Hafðu samband
Tímasparnaður strax í dag
Láttu okkur sjá um samskiptin svo þú getir einbeitt þér að móttöku gestanna.
Sendu okkur fyrirspurn og við svörum eins fljótt og við getum.