Spurningar og svör
Algengar spurningar um þjónustuna
Þarf ég að kaupa nýjan hugbúnað?
Af hverju er mismunandi verð eftir fjölda herbergja?
Nei, við vinnum beint inni á þínum eigin Booking.com reikningi. Þú þarft ekki að læra á nein ný kerfi eða greiða aukalega fyrir hugbúnað.
Því fleiri herbergi sem gististaðurinn hefur, því umfangsmeiri verða verkefnin og meiri tími fer í uppsetningu og breytingar.
Er einhver bindingartími?
Nei. Áskriftinni er hægt að segja upp hvenær sem er. Ef engin vinna hefur verið framkvæmd á yfirstandandi tímabili er hægt að hætta við án vandræða.
Hvernig fer greiðsla fram?
Greiðsla fer fram með reikningi sem sendur er beint í heimabanka viðskiptavinar
Þarf ég að veita aðgang að Booking.com?
Já, til að framkvæma breytingar þarf Gestaléttir viðeigandi aðgang að Booking.com reikningnum. Aðgangurinn er eingöngu notaður til að framkvæma umbeðin verkefni og þið getið einnig sjálf ákveðið hvaða svæði við höfum aðgang að.
Hversu langan tíma tekur uppsetning?
Markmið okkar er að ljúka flestum verkefnum innan 1–3 virkra daga frá því að allar nauðsynlegar upplýsingar hafa borist.
Get ég keypt fleiri en eina þjónustu?
Já, þjónusturnar eru sjálfstæðar og hægt er að kaupa þær saman eða sitt í hvoru lagi eftir þörfum.