Þú þarft engan hugbúnað.
Við vinnum beint í þínu Booking.com kerfi

Skilaboðapakkinn

Skilaboðapakkinn hjálpar til við að draga úr síendurteknum spurningum frá gestum á Booking.com með sjálfvirkum svörum.

Þið sendið okkur lista af algengum spurningum sem gestir spyrja eða við setjum upp staðlaðan grunn sem byggir á reynslu okkar af rekstri gististaða.

Dæmi um algengar spurningar:
• Eru handklæði innifalin?
• Hvernig fer innritun fram?

Verð:

1–10 herbergi: 29.900 kr.
11–25 herbergi: 39.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

1-Viku Eftirfylgni

Stundum koma ný lykilorð og spurningar í ljós eftir að Skilaboðapakkanum er lokið.

Með 1-Viku Eftirfylgni getið þið sent okkur viðbótarlykilorð og breytingar í allt að 7 daga frá verklokum Skilaboðapakkans og við bætum þeim við eins fljótt og auðið er.

Þjónustan er eingöngu í boði fyrstu 7 dagana eftir að uppsetningu Skilaboðapakkans lýkur.

Athugið að lykilorð sem berast um helgar eru afgreidd á næsta virka degi sem er ekki frí- eða helgidagur á Íslandi eða í Tælandi.

Verð:
1–10 herbergi: 5.900 kr.
11–25 herbergi: 7.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

Stundum koma nýjar spurningar og lykilorð í ljós eftir að Skilaboðapakkanum er lokið.

Með Viðbótarþjónustu getið þið sent okkur ný lykilorð, skilaboð eða breytingar á eldri uppsetningum og við sjáum um að uppfæra kerfið eftir þörfum.

Þjónustan hentar meðal annars fyrir:
• Ný lykilorð
• Ný sjálfvirk skilaboð
• Breytingar á eldri skilaboðum
• Viðbætur við fyrri uppsetningar
• Aðrar smærri breytingar á skilaboðakerfinu

Athugið að umfangsmeiri verkefni kunna að falla undir tímagjald. Haft verður samband áður en vinna hefst ef svo er.

Verð:

1–10 herbergi: 8.900 kr.
11–25 herbergi: 11.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

Viðbótarþjónusta

Tengdar Þjónustur

Vinsælasti pakkinn okkar

Hefurðu áhuga á þessari þjónustu?

Afsláttarpakkinn

Booking.com býður upp á fjölmargar leiðir til að setja upp afslætti og tilboð. Fyrir marga getur verið tímafrekt að finna réttar stillingar og koma þeim í gang.

Þið segið okkur hvaða afslátt eða tilboð þið viljið nota og við sjáum um uppsetninguna.

Dæmi um algenga afslætti:
• Mobile Rate
• Country Rate
• Early Booker Deal

Þegar afslættirnir hafa verið settir upp getið þið sjálf kveikt og slökkt á þeim eftir þörfum.

Verð
1–25 herbergi: 14.900 kr.

25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

Viðbótarþjónusta

Stundum þarf að bæta við nýjum afsláttum eða gera breytingar á eldri tilboðum eftir að upphaflegri uppsetningu lýkur.

Með Viðbótarþjónustu getið þið sent okkur afmarkaðar breytingar og viðbætur við afslætti sem þegar hafa verið settir upp og við sjáum um framkvæmd þeirra.

Þjónustan hentar meðal annars fyrir:
• Ný afsláttartilboð
• Breytingar á eldri afsláttum
• Tímabundin tilboð fyrir ákveðin tímabil
• Breytingar á afsláttaprósentum
• Aðrar smærri breytingar á fyrri uppsetningum

Athugið að umfangsmeiri verkefni kunna að falla undir tímagjald. Haft verður samband áður en vinna hefst ef svo er.

Verð:

1–25 herbergi: 5.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

Reglulegt Umsagnayfirlit

Fyrir þá sem vilja fylgjast reglulega með upplifun gesta og þróun umsagna.

Með Umsagnaáskrift fær gististaðurinn Umsagnayfirlit á tveggja mánaða fresti þar sem nýjustu umsagnir eru greindar og bornar saman við fyrri niðurstöður.

Í hverri yfirferð fáið þið meðal annars:

• Helstu breytingar frá síðustu yfirferð
• Ný atriði sem gestir nefna í auknum mæli
• Algengustu hrós og kvartanir
• Tillögur að mögulegum úrbótum

Þjónustan hentar sérstaklega vel þeim sem vilja fylgjast reglulega með þróun upplifunar gesta án þess að fara sjálf yfir umsagnirnar.

Verð:

1–10 herbergi: 16.900 kr. á tveggja mánaða fresti.
11-25 herbergi: 21.900 kr. á tveggja mánaða fresti
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

Umsagnayfirlit

Við förum yfir nýjustu umsagnirnar á Booking.com og tökum saman helstu atriði sem gestir nefna.

Í skýrslunni fáið þið meðal annars:

• Algengustu hrósin
• Algengustu kvartanirnar
• Endurtekin atriði sem vert er að fylgjast með
• Tillögur að mögulegum úrbótum

Markmiðið er að gefa skýra mynd af því hvað gestir meta mest og hvar tækifæri eru til úrbóta, án þess að þurfa að lesa tugi umsagna handvirkt.

Verð:

1–10 herbergi: 19.900 kr.
11-25 herbergi: 24.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.

Hefurðu áhuga á þessari þjónustu?

Fyrir þá sem þurfa aðstoð við einstök verkefni, breytingar eða ráðgjöf sem falla ekki undir aðra þjónustu Gestaléttis.

Tímagjald hentar meðal annars fyrir:
• Ráðgjöf varðandi Booking.com
• Aðstoð við stillingar og uppsetningar
• Yfirferð á núverandi verklagi
• Einstök verkefni sem falla utan þjónustupakkanna
• Aðrar séróskir eftir þörfum

Athugið að viðskiptavinir með virka þjónustu hjá Gestalétti hafa forgang. Vinsamlegast hafið samband í hallo@gestalettir.is til að fá staðfest hvenær verkefnið kemst að.

Verð:

7.900 kr./klst.

Tímagjald

Hafðu samband

Tímasparnaður strax í dag

Láttu okkur sjá um samskiptin svo þú getir einbeitt þér að móttöku gestanna.
Sendu okkur fyrirspurn og við svörum eins fljótt og við getum.