Þú þarft engan hugbúnað.
Við vinnum beint í þínu Booking.com kerfi




Skilaboðapakkinn
Skilaboðapakkinn hjálpar til við að draga úr síendurteknum spurningum frá gestum á Booking.com með sjálfvirkum svörum.
Þið sendið okkur annað hvort lista af algengum spurningum sem gestir spyrja eða við setjum upp staðlaðan grunn sem byggir á reynslu okkar af rekstri gististaða.
Dæmi um algengar spurningar:
• Eru handklæði innifalin?
• Er eldhús aðgengilegt?
• Hvenær er innritun?
• Eru pottar og pönnur til staðar?
• Er bílastæði í boði?
Verð:
1–10 herbergi: 29.900 kr.
11–25 herbergi: 39.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.


1-Viku Eftirfylgni
Stundum koma ný lykilorð og spurningar í ljós eftir að Skilaboðapakkanum er lokið.
Með 1-Viku Eftirfylgni getið þið sent okkur viðbótarlykilorð og breytingar í allt að 7 daga frá verklokum Skilaboðapakkans og við bætum þeim við eins fljótt og auðið er.
Athugið að lykilorð sem berast um helgar eru afgreidd á næsta virka degi sem er ekki frí- eða helgidagur á Íslandi eða í Tælandi.
Verð 5.900 kr
Við mælum með >


Stundum koma nýjar spurningar og lykilorð í ljós eftir að Skilaboðapakkanum er lokið.
Með Viðbótarþjónustu getið þið sent okkur ný lykilorð, skilaboð eða breytingar á eldri uppsetningum og við sjáum um að bæta þeim við eins fljótt og auðið er.
Þjónustan hentar meðal annars fyrir:
• Ný lykilorð
• Ný sjálfvirk skilaboð
• Breytingar á eldri skilaboðum
• Viðbætur við fyrri uppsetningar
• Aðrar smærri breytingar á skilaboðakerfinu
Athugið að umfangsmeiri verkefni kunna að falla undir tímagjald. Haft verður samband áður en vinna hefst ef svo er.
Verð:
1–10 herbergi: 8.900 kr.
11–25 herbergi: 11.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.
Viðbótarþjónusta


Fyrir þá sem vilja einstakar breytingar, ráðgjöf eða verkefni sem falla ekki undir aðra þjónustu Gestaléttis.
Tímagjald hentar meðal annars fyrir:
• Ráðgjöf varðandi Booking.com
• Aðstoð við stillingar og uppsetningar
• Yfirferð á núverandi verklagi
• Einstök verkefni sem falla utan þjónustupakkanna
• Aðrar séróskir eftir þörfum
Athugið að viðskiptavinir með virka þjónustu hjá Gestaléttir hafa forgang. Vinsamlegast hafið samband til að fá staðfest hvenær verkefnið kemst að.
Verð:
7.900 kr./klst.
Tímagjald


Afsláttarpakkinn
Booking.com býður upp á fjölmargar leiðir til að setja upp afslætti og tilboð. Fyrir marga getur verið tímafrekt að finna réttar stillingar og koma þeim í gang.
Þið segið okkur hvaða afslátt eða tilboð þið viljið nota og við sjáum um uppsetninguna.
Dæmi um afslætti:
• Mobile Rate
• Country Rate
• Basic Deal
• Last Minute Deal
• Early Booker Deal
• Getaway Deal
Þegar afslættirnir hafa verið settir upp getið þið sjálf kveikt og slökkt á þeim eftir þörfum.
1–25 herbergi: 14.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.


Viðbótarþjónusta
Stundum þarf að bæta við nýjum afsláttum eða gera breytingar á eldri tilboðum eftir að upphaflegri uppsetningu lýkur.
Með Viðbótarþjónustu getið þið sent okkur afmarkaðar breytingar og viðbætur við afslætti sem þegar hafa verið settir upp og við sjáum um að framkvæma þær eins fljótt og auðið er.
Þjónustan hentar meðal annars fyrir:
• Ný afsláttartilboð
• Breytingar á eldri afsláttum
• Tímabundin tilboð fyrir ákveðin tímabil
• Breytingar á afsláttaprósentum
• Aðrar smærri breytingar á fyrri uppsetningum
Athugið að umfangsmeiri verkefni kunna að falla undir tímagjald. Haft verður samband áður en vinna hefst ef svo er.
Verð:
1–25 herbergi: 5.900 kr.
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.


Reglulegt Umsagnayfirlit
Fyrir þá sem vilja reglulega yfirsýn yfir upplifun gesta.
Með Umsagnaáskrift fær gististaðurinn Umsagnayfirlit á tveggja mánaða fresti þar sem nýjustu umsagnir eru greindar og bornar saman við fyrri niðurstöður.
Í hverri yfirferð fáið þið meðal annars:
• Helstu breytingar frá síðustu yfirferð
• Ný atriði sem gestir nefna í auknum mæli
• Algengustu hrós og kvartanir
• Tillögur að mögulegum úrbótum
Þjónustan hentar sérstaklega vel þeim sem vilja fylgjast reglulega með þróun upplifunar gesta án þess að fara sjálf yfir umsagnirnar.
Verð:
1–10 herbergi: 16.900 kr. á tveggja mánaða fresti.
11-25 herbergi: 21.900 kr á tveggja mánaða fresti
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.


Umsagnayfirlit
Við förum yfir nýjustu umsagnirnar á Booking.com og tökum saman helstu atriði sem gestir nefna.
Í skýrslunni fáið þið meðal annars:
• Algengustu hrósin
• Algengustu kvartanirnar
• Endurtekin atriði sem vert er að fylgjast með
• Tillögur að mögulegum úrbótum
Markmiðið er að hjálpa ykkur að sjá það sem gestirnir sjá án þess að þurfa að lesa tugi umsagna sjálf.
Við förum yfir 80 nýjustu umsagnirnar
Verð:
1–10 herbergi: 19.900 kr.
11-25 herbergi: 24.900 kr
25+ herbergi: Verð eftir samkomulagi.
Hafðu samband
Tímasparnaður strax í dag
Láttu okkur sjá um samskiptin svo þú getir einbeitt þér að móttöku gestanna.
Sendu okkur fyrirspurn og við svörum eins fljótt og við getum.